Arnar Freyr á leið til Flensburg
Sævar Jónasson

Landsliðsmaðurinn, Arnar Freyr Arnarsson er samkvæmt heimildum Handkastsins að ganga í raðir Flensburg frá og með næsta tímabili. Flensburg er í 2.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 43 stig, sjö stigum á eftir toppliði Magdeburg.

Samningur Arnars Freys við MT Melsungen rennur út eftir tímabilið en hann er að klára sitt sjötta tímabil með félaginu. Arnar Freyr lék eitt tímabil með GOG í Danmörku og þar áður var hann þrjú tímabil í IFK Kristianstad í Svíþjóð.

Er Arnari ætlað að fylla skarð þýska landsliðsmannsins, Johannes Golla sem gengur í raðir MT Melsungen í sumar frá Flensburg.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafði Arnar Freyr verið í viðræðum við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar en vegna stöðu liðsins í úrvalsdeildinni þar sem liðið er í fallbaráttu.

Viggó Kristjánsson, liðsfélagi Arnars Freys í íslenska landsliðinu skrifaði á dögunum undir samning við Flensburg en hann gengur ekki til liðs við félagið fyrr en sumarið 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur út.

Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Arnar Freyr tilkynntur sem nýr leikmaður Flensburg á næstu dögum.

EITT BESTA FÉLAG Í ÞÝSKALANDI SÍÐUSTU 25 ÁR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top