Davíð Örn Hlöðversson þjálfari karlaliðs Gróttu og Lárus Gunnarsson aðstoðarþjálfari hafa ákveðið að láta af störfum sem þjálfarateymi liðsins. Grótta tilkynnti tíðindin á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Davíð gerði þriggja ára samning við Gróttu fyrir tímabilið en lætur nú af störfum. Saman stýrðu þeir liðinu í vetur sem endaði í 2.sæti Grill 66-deildar karla. Liðið fór í umspil en tapaði í undanúrslitum gegn Herði á dögunum 2-0. Liðið komst í 16 liða úrslit Powerade-bikarsins í vetur en mætti þar ofjörlum sínum í Olísdeildarliði FH. ,,Stjórn handknattleiksdeildar Gróttu færir Davíð Erni og Lárusi þakkir fyrir góð störf og óskar þeim velfarnaðar í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendur. Allt þeirra starf hefur borið þess vitni að þeir eru miklir og sannir Gróttumenn. Leit að nýjum þjálfara meistaraflokks karla er þegar hafin og verður tilkynnt um niðurstöðu hennar þegar þar að kemur," segir í tilkynningunni frá Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.