Spánska ungstirnið í handbolta, Marcos Fis sem vakti mikla athygli með Spánverjum á Evrópumótinu í janúar er sagður vera á leið til Barcelona og gangi í raðir félagsins sumarið 2027. Marcos Fis á þar með að fylla skarð franska landsliðsmannsins, Dika Mem sem gengur í raðir Füchse Berlin. Fis sem er einungis 18 ára gamall var að leika á sínu fyrsta stórmóti á EM í janúar. LÍKJA SPÁNVERJANUM UNGA VIÐ LAMINE YAMAL Það er Handballbase sem greinir frá þessum fréttum og þá hefur spænski miðilinn, Mundo Deportivo staðfest fréttirnar en þeir segja að Fis sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Barcelona og gangi þar með í raðir félagsins frá Fraikin Granollers. Það hefur lengi legið fyrir að Marcos Fis hafi verið undir smásjá Barcelona. Hann er markahæsti leikmaður Granollers í Evrópudeildinni með 47 mörk, en í ASOBAL deildinni, þeirri efstu á Spáni hefur hann þegar skorað 128 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.