
Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sæti á Evrópumótinu sem fram fer í desember eftir frábæra frammistöðu í seinni hálfleik í sigri liðsins gegn Portúgal fyrir framan troðfulla stúku á Ásvöllum. Þar með er ljóst að Ísland leikur á sínu fjórða stórmóti í röð og á leiðinni á sitt sjöunda stórmót í sögunni. Þetta varð ljóst eftir frábæran sigur liðsins gegn Portúgal á Ásvöllum í dag 32-24. Fyrir leikinn var vitað að um væri að ræða úrslitaleik fyrir báðar þjóðir um laust sæti á Evrópumótinu en íslenska liðið var einungis með tvö stig í riðlinum fyrir leikinn í kvöld sem var sá síðasti í undankeppninni. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir íslenska landsliðið sem lenti strax 1-5 undir í upphafi leiks og var lengi vel að elta gestina frá Portúgal sem voru þremur mörkum yfir 10-7 eftir 20 mínútna leik. Íslenska liðið fór illa með góð færi og þá tapaði liðið mörgum boltum sem hjálpi þeim ekki í eltingarleiknum. Í stöðunni 12-10 fyrir Portúgal tók Arnar Pétursson þá ákvörðun að skipta úr 6-0 vörn í 5-1 vörn sem hafði slæm áhrif á sóknarleik Portúgals og íslenska liðið gekk á lagið og hvert hraðarupphlaupsmarkið á fætur öðru leit dagsins ljós. Íslenska liðið skoraði fimm síðustu mörk fyrri hálfleiksins og fór með óvænta en kærkomna þriggja marka foyrstu inn í hálfleikinn í stöðunni 15-12. Með Hafdísi Renötudóttur í góðum gír í markinu hélt íslenska liðinu Portúgal í þægilegri fjarlægð allan leikinn og jók forskotið þegar leið á leikinn. Tíu mínútum fyrir leikslok náði íslenska liðið tíu marka forystu í fyrsta sinn í leiknum. Eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi lenda. Lokatölur urðu síðan 32-24 Íslandi í vil en Hafdís Renötudóttir varði hvorki fleiri né færri en 15 skot í markinu með 45% markvörslu. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með sjö mörk og Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði sex. Sandra Erlingsdóttir, Katrín Anna Ásmundsdóttir og Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoruðu fjögur mörk hver. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.