Andrew Wisman í HK

HK hefur samið við danska leikmanninn Andrew Wisman sem er fæddur árið 2004 og kemur hann upp úr öflugri akademíu hjá Nordsjælland. Samningur HK við Andrew er til 2 ára. 

Andrew hefur spilað með Nordsjælland síðustu tvö tímabil, en var í janúar lánaður til Ystad í Svíþjóð, þar sem hann leikur nú. Þá hefur hann einnig verið hluti af yngri landsliðum Danmerkur og var í 20 manna hópi U20 landsliðsins sem varð heimsmeistari og vann silfur á Evrópumóti.

Í tilkynningunni frá HK segja þeir þó ekki í hvaða stöðu leikmaðurinn spilar.

"Andrew er ungur og efnilegur leikmaður sem ég þekki vel frá mínum tíma hjá Nordsjælland, þar sem hann var að stíga sín fyrstu skref með aðalliðinu úr akademíunni. Hann er kröftugur leikmaður sem mun styrkja okkur á næstu árum og það er mikið gleðiefni að hann hafi valið HK fram yfir aðra möguleika sem hann hafði í boði. Við ætlumst til mikils af honum og vonum að hann haldi áfram að þroskast sem leikmaður í HK treyjunni" segir Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK í tilkynningu frá HK í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top