Nýliðarnir stórhuga – Á eftir reynslu miklum leikmönnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Víkingur tryggði sér sæti í Olís-deild karla á nýjan leik eftir tveggja ára veru í Grill66-deildinni en það er orðið töluvert síðan liðið hélt sæti sínu í deild þeirra bestu og það hefur verið þeirra hlutskipti að falla niður í Grill66-deildina í hvert skipti sem liðið leikur í Olís-deildinni.

Víkingar virðast hinsvegar vera stórhuga með Aðalstein Eyjólfsson í brúnni á leið í sitt þriðja tímabil sem þjálfari liðsins en samkvæmt heimildum Handkastsins hefur félagið áhuga á að fá annað hvort Hákon Daða Styrmisson leikmann ÍBV eða Igor Kopishinsky sem hefur leikið með Aftureldingu undanfarin ár.

Hákon Daði gekk í raðir ÍBV í janúar og gerði samning út tímabilið eftir að hafa leikið í Þýskalandi undanfarin ár. Samningi Igor Kopishinsky við Aftureldingu var sagt upp á dögunum og er hann því samningslaus fyrir næsta tímabil.

Það verður þó að teljast ansi ólíklegt að Víkingur sæki sér báða þessa leikmenn þar sem báðir leika þér í stöðu vinstri hornamanns en það er hinsvegar ljóst að Víkingur myndi vilja fá annan hvorn leikmanninn.

Hákon Daði flutti heim til Íslands vegna fjölskylduaðstæðna en hann eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum. Hann er búsettur á höfuðborgarsvæðinu og ólíklegt þykir að hann verði áfram í herbúðum ÍBV.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top