
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karlalandsliðsins hefur framlengt samning sinn við HSÍ til 2032 eða framyfir Ólympíuleikana í Brisbane. Arnór Atlason aðstoðarmaður Snorra semur einnig við HSÍ til 2032. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem HSÍ hélt í höfuðstöðvum Arion Banka í hádeginu í dag. Handkastið settist niður með Snorra Steini í kjölfarið og spjallaði við hann um samninginn, framtíðina og miklu meira til. Hægt er að hlusta á viðtalið í öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.