
Hans Jörgen Ólafsson hefur gengið til liðs við Aftureldingu en félagið tilkynnti um félagsskiptin á Facebook síðu sinni nú fyrir stundu. Hans Jörgen kemur til liðsins frá Stjörnunni en hann er upp alinn á Selfossi. Hér að neðan má lesa tilkynningu sem Afturelding birti á samfélagsmiðlum sínum. Það gleður okkur að tilkynna það að Hans Jörgen Ólafsson hefur skrifað undir samning við Handknattleiksdeild Aftureldingar um að leika með liðinu næstu þrjú ár. Hans Jörgen er 22 ára gamall og kemur í Mosfellsbæinn frá Stjörnunni en hann var þeirra markahæsti leikmaður á tímabilinu með 109 mörk í 21 leik. Hans er einnig mjög öflugur varnarmaður og var í öllum yngri landsliðum Íslands. Hans hefur tekið miklum framförum í stjörnunni síðastliðin ár og er mjög metnaðarfullur leikmaður og æfir mjög vel og við erum sannfærð um að hann muni smellpassa inn í kúlturinn í Pizzabæ. Bjóðum Hans Jörgen hjartanlega velkominn í Mosfellsbæ!
Áfram Afturelding!+

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.