

Samkvæmt heimildum Handkastsins er HK á eftir færeyska leikmanninum, Trúgvi Hávardsson leikmanni StíF í færeysku deildinni. Trúgvi sem er fæddur árið 2005 er þriðji markahæsti leikmaður StÍF á tímabilinu með 104 mörk, þar af ekkert af vítalínunni en Trúgvi hefur verið viðloðandi færeyska landsliðið. Færeyingurinn hefur verið í lykilhlutverki hjá StÍF undanfarin tímabil en hann skoraði 136 fyrir liðið á síðustu leiktíð. Á dögunum gekk danski leikmaðurinn, Andrew Wisman í raðir HK frá Nordsjaelland en HK-ingar eru að reyna fylla þau skörð sem verða á hópnum í sumar en Ágúst Guðmundsson gengur í raðir FH, Haukur Ingi Hauksson hefur skrifað undir hjá Fram og þá bendir allt til þess að Sigurður Jeffersson leiki með Haukum á næstu leiktíð. Fjölmargir færeyskir leikmenn hafa spilað í Olís-deildinni undanfarin tímabil með góðum árangri.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.