
Hægri hornamaðurinn, Eiður Rafn Valsson hefur framlengt samningi sínum við Fram til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. ,,Það gleður okkur að tilkynna að einn af okkar eigin er búinn að framlengja samninginn sinn við Fram," segir í tilkynningunni. Eiður Rafn er örfhentur hornamaður sem kom upp í gegnum yngri flokka starf okkar. ,,Eiður hefur verið að bæta sig jafnt og þétt frá því að hann kom upp í meistaraflokk og átti stóran þátt í velgengni tímabilsins 24/25. Við væntum mikils af Eiði á komandi tímabilum þar sem að hann er gífurlega samviskusamur og duglegur," segir enn fremur í tilkynningunni. Eiður var fimmti markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með 63 mörk en Fram endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar og féll úr leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn FH 2-0.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.