
Í hlaðvarpsþætti Handkastsins sem gefinn var út vikunni var þjálfarastaða Aftureldingar til umræðu en rúmlega tvær vikur eru síðan Stefán Árnason var rekinn eftir eins árs starf sem þjálfari karlalið félagsins í Olís-deild karla. Áður en Stefán Árnason var rekinn var nafn Hrannars Guðmundssonar fyrrum þjálfara Stjörnunnar strax komið til umræðu um líklegan eftirmann Aftureldingar. Hrannar hefur sterkar tengingar í Aftureldingu og þekkir vel til innan stjórnar handknattleiksdeildar liðsins. Það lá því beinast við að Hrannar myndi taka við liðinu. Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins spurði Kristinn Björgúlfsson gest þáttarins að því hver væri að fara taka við Aftureldingu? ,,Er ekki Hrannar Guðmundsson að fara taka við og síðan heyrði ég að Ásbjörn Friðriksson yrði aðstoðarþjálfari hans. Jónatan Magnússon hefur víst hafnað að fara í viðræður við Aftureldingu," sagði Kiddi Bjé. Hrannar var um tíma í þjálfarateymi FH ásamt Sigursteini Arndal og Ásbirni Friðrikssyni og þekkir því ágætlega til Ása. Handkastið hefur ekki heyrt af neinum viðræðum Aftureldingar við aðra þjálfara og því bendir flest til þess að það verði Hrannar Guðmundsson sem taki við liðinu eins og flestir höfðu spáð fyrir um. Hrannar stýrði karlaliði Stjörnunnar í þrjú tímabil. Fyrstu tvö árin lenti Stjarnan í 7.sæti en í ár endaði Stjarnan í 11.sæti deildarinnar og var hársbreidd frá því að falla. Hrannari var síðan sagt upp störfum eftir tímabilið og stýrði liðinu því ekki í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni þar sem Stjarnan hafði betur gegn Fjölni og Herði og leikur því áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.