
Samkvæmt heimildum Handkastsins verður Andri Sigfússon næsti þjálfari karlaliðs Gróttu í Grill66-deildinni. Verður hann kynntur sem þjálfari Gróttu á allra næstu dögum en leit af aðstoðarmanni hans stendur nú yfir. Andri Sigfússon hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka félagsins auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka Gróttu með góðum árangri. Þá er Andri einnig í þjálfarateymi 2008 landsliðs Íslands ásamt Ásgeiri Erni Hallgrímssyni. Andri er kunnugur staðháttum á Nesinu en hann er uppalinn á Seltjarnarnesi og hefur áður verið í þjálfarateymi Gróttu en hann var meðal annars aðstoðarþjálfari Gunnars Andréssonar á sínum tíma og þá lék hann með meistaraflokki Gróttu til ársins 2009. Andri er silfurmerkjahafi Gróttu og var íþróttastjóri félagsins frá árunum 2008-2012. Miklar breytingar hafa orðið á liði Gróttu frá nýafstaðinni leiktíð en liðið tapaði í umspili um laust sæti í Olís-deildinni gegn Herði 2-0 í undanúrslitum umspilsins. Liðið endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar með jafn mörg stig og Víkingur sem fór beint upp vegna betri innbyrðisstöðu milli liðanna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.