Stjórn Handknattleiksdeildar ÍR sendi frá sér tilkynningu í kjölfar umfjöllunar Handkastsins á brotthvarfi Grétars Áka sem þjálfara kvennaliðs félagsins. Handkastið fjallaði fyrst allra miðla um það að Grétar Áki yrði ekki áfram þjálfari kvennaliðs félagsins. Í ítarlegri umfjöllun Handkastsins í hlaðvarpsþætti miðvikudaginn 22. apríl var farið yfir það að samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum Handkastsins hefðu tveir landliðsmenn í liði ÍR lýst yfir óánægju sinni með Grétar Áka þar sem þær töldu hann ekki vera nægilega stórt nafn sem gæti laðað að leikmenn til liðsins. Handkastið hefur þetta frá mjög áreiðanlegum heimildum og stendur við þá frásögn sína. Í kjölfar umfjöllunar Handkastsins sendi ÍR frá sér tilkynningu vegna málsins en tilkynninguna í heildi sinni má sjá hér: Stjórn Handknattleiksdeildar ÍR hafði áður sent frá sér tilkynningu þar sem brotthvarf Grétars Áka var staðfest en þar var því haldið fram að Grétar hefði sjálfur óskað eftir því að láta af störfum. Í tilkynningu stjórnar ÍR sem formaður deildarinnar, Kristinn Jóhannsson, ritar undir segir hinsvegar að "Allar ákvarðanir er varða þjálfarateymi félagsins eru teknar af stjórn handknattleiksdeildar ÍR. Slíkar ákvarðanir eru teknar með hagsmuni félagsins, leikmannahópsins og framtíð kvennaliðsins að leiðarljósi og eru alfarið á ábyrgð stjórnarinnar." Svo virðist því sem formaðurinn staðfesti þá frásögn Handkastsins að Grétar hafi verið látinn fara. Ekki hefur náðst í formann handknattleiksdeildar ÍR þrátt fyrir margar tilraunir. Þá bauð Handkastið Söru Dögg Hjaltadóttur að koma sínum sjónarmiðum að en hún hefur ekki orðið við þeirri beiðni ritstjórnar. Auk þess hefur Björgvin Þór Hólmgeirsson, framkvæmdarstjóri handknattleiksdeildar ÍR, ekki viljað tjá sig um málið þegar Handkastið hafði samband við hann. Besti árangur í sögu félagsins Eins og kom fram í fyrri umfjöllun Handkastsins um málið endaði kvennalið ÍR í 4. sæti Olís deildarinnar í vetur sem er besti árangur í sögu félagsins. Eins og gefur að skilja vakna upp margar spurningar þegar þjálfari liðs er látinn fara og vekur þetta mál sérstaklega upp margar spurningar í ljósi árangurs liðsins í vetur. Ekki ýtir það undir trúverðugleika stjórnar ÍR að hvorki formaður handknattleiksdeildar svari ítrekuðum símtölum Handkastsins og að framkvæmdarstjóri deildarinnar vilji ekki tjá sig um málið. Umræðuna um málið má hlusta á í þættinum hér að neðan:Talaði formaður ÍR óafvitandi af sér í yfirlýsingu ÍR?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.