Uscins sagður á leið til PSG
Harry Langer / AFP

Samkvæmt þýska miðlinum SportBild er Renars Uscins að ganga til liðs við Paris Saint-Germain. Er hann sagður ganga í raðir franska stórliðsins sumarið 2027 þegar samningur hans við Hannover-Burgdorf rennur út.

Um er að ræða stórt skref fyrir franska liðið, PSG sem einnig sagt hafa augastað á norska landsliðsmanninum Magnus Abelvik Rød, sem myndi styrkja hópinn enn frekar. Illa hefur gengið hjá franska liðinu undanfarin tvö tímabil á evrópskum grundvelli.

Uscins hafði samkvæmt heimildum nokkur tilboð frá stærstu liðum Evrópu, en valdi PSG þar sem félagið getur tryggt honum þátttöku í Meistaradeild Evrópu. Það virðist hafa verið lykilatriði í ákvörðun hans.

Talið er að samið hafi verið um þriggja ára samning, þó ekki hafi verið gefnar upp frekari upplýsingar um samningskjör að svo stöddu.

Renars Uscins er fæddur árið 2002 í Lettlandi en fluttist ungur til Þýskalands og hefur leikið með þýska landsliðinu frá árinu 2023.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top