Efnilegur Færeyingur í HK
HK

HK-ingar hafa sótt sér annan erlendan leikmann fyrir átökin í Olís-deild karla á næstu leiktíð því félagið hefur samið við færeyska leikmanninn, Trúgva Hávardsson.

Trúgvi Hávardsson semur við HK til tveggja ára eða út leiktímabilið 2027/2028. Trúgvi kemur til liðsins frá Stíf í Færeyjum þar sem hann hefur spilað upp allra yngri flokka.

HK REYNIR VIÐ EFNILGAN FÆREYING

Handkastið greindi frá því á dögunum að HK væri á eftir Trúgva og hefur félagið nú staðfest að leikmaðurinn hafi gengið í raðir HK sem endaði í 8.sæti Olís-deildarinnar. Liðið hefur misst fjóra öfluga leikmenn frá síðustu leiktíð en fjórir leikmenn hafa hinsvegar gengið í raðir félagsins eftir tímabilið.

,,Trúgvi er ungur og mjög spennandi leikstjórnandi sem við erum mjög stoltir af að fá til okkar næstu 2 ár. Trúgvi var mikilvægur hlekkur í U21 landsliði Færeyja sem fór í undanúrslit á HM í Póllandi sl sumar og hefur verið besti leikmaðurinn í færeysku deildinni í vetur ef tekið er mið af tölfræði. Við teljum Trúgva passa fullkomnlega inní okkar umhverfi og leikskipulag og hlökkum til að sjá hann bæta sig í HK treyjunni á næstu árum," segir í tilkynningunni frá HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top