Er Patti Jó á leið í Mosó?
Egill Bjarni Friðjónsson

Bæði karla og kvennalið Aftureldingar eru þjálfaralaus um þessar mundir eftir að Stefán Árnason var sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðsins og þá hætti Guðmundur Helgi Pálsson við að taka við kvennaliði Aftureldingar eftir að þjálfarastarf kvennaliðs ÍR losnaði samkvæmt heimildum Handkastsins.

Handkastið greindi frá því á dögunum að Ásbirni Friðrikssyni hafi verið boðið að taka við sem aðstoðarþjálfari karlaliðs Aftureldingar en allt bendir til þess að Hrannar Guðmundsson fyrrum þjálfari karlaliðs Stjörnunnar taki við Aftureldingu.

Ásbjörn sagði í samtali við Handkastið í kjölfarið að hann væri ekki á leið í Mosfellsbæinn. Nú er orðrómur uppi um að Patrekur Jóhannesson sé næstur á lista Mosfellinga um að gerast aðstoðarþjálfari Hrannars.

Hrannar tók við liði Stjörnunnar af Patreki í upphafi tímabils 2023/2024 og stýrði liðinu í þrjú tímabil. Patrekur tók við kvennaliði Stjörnunnar tímabilið 2024/2025 en var sagt upp störfum í október á síðasta ári.

Það verður áhugavert að sjá hvort þessar háværuraddir eigi einhver stoð í raunveruleikanum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top