
Kvennalið ÍBV var fyrir áfalli í undanúrslitaleik liðsins gegn Haukum þar sem markvörður liðsins, Amalia Fröland, meiddist í seinni hálfleik síðari framlengingar. Það hefur nú komið í ljós að fremra krossband í hnéinu á henni er slitið og því verður hún ekkert meira með næstu mánuði. ÍBV óskaði eftir því við HSÍ að fá markmann á neyðarláni sökum þess að næsti markmaður í félaginu er í 4.flokk. Samkvæmt heimildum Handkastins komu þó nokkur félag að máli við ÍBV og bauðst til að lána þeim markmann fyrir úrslitaeinvígið gegn Val en þeirri beiðni var hafnað af HSÍ sem hefur víst ekki heimild til að veita það leyfi. Það verður forvitnilegt að sjá hvaða markverði ÍBV teflir fram í leiknum gegn Val en fyrsti leikur liðanna verður á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 15:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.