
Alvarlegt atvik átti sér stað í öðrum leik Vals og ÍBV í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn þegar stuðningsmenn ÍBV létu niðrandi köll dynja á markverði Vals, Hafdís Renötudóttir. Valur leiðir í einvíginu 2-0 en liðin mætast í þriðja sinn í Valsheimilinu á laugardaginn þar sem Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á 32. mínútu leiksins þegar heyra mátti stuðningsmenn ÍBV hrópa: „Hafdís fílar skæri“, sem vísar til kynlífs tveggja kvenna. Landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Vals, Hafdís Renötudóttir er samkynhneigð. Ummælin hafa vakið mikla reiði meðal leikmanna og aðstandenda Vals en þau eru talin bæði niðrandi, ósmekkleg og skýr dæmi um fordóma í garð samkynhneigðra. Samkvæmt heimildum Handkastsins er málið komið á borð HSÍ þar sem þess er krafist skýrra viðbragða frá Handknattleikssambandi Íslands, þar sem bent er á að sambandinu beri skylda til að vernda leikmenn gegn slíkri framkomu. Í siðareglum HSÍ kemur skýrt fram að mismunun á grundvelli kynhneigðar sé óásættanleg og að hvers konar kynferðisleg eða niðrandi áreitni verði ekki liðin. Hefur Handkastið fengið sent myndskeið frá vitnum þar sem þau segja atvikið vera augljóst brot á þessum siðareglum og kalla eftir viðeigandi viðurlögum. Vísað hefur verið til erlendra dæma þar sem félög hafa sætt sektum og refsingum vegna sambærilegra atvika. Er nú beðið eftir viðbrögðum HSÍ við málinu og hefur HSÍ verið þrýst á að fylgja fordæmi erlendis frá. Í myndskeiðinu hér að neðan heyrist vel þegar stuðningsmenn ÍBV kalla: ,,Hafdís fílar skæri." Handkastið fordæmir hegðun stuðningsmanna ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.