69. ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ fór fram í Virkinu í Safamýri í dag, þar sem fjöldi mála var tekinn til afgreiðslu. Helst bar til tíðinda að ályktun stjórnar HSÍ um breytingar á fyrirkomulagi úrslitakeppni var samþykkt. Breytingin felur í sér að í 8-liða úrslitum verður leikið í tveimur fjögurra liða riðlum, fyrirkomulag sem þekkist meðal annars í Danmörku. Einnig var ályktun frá Gróttu samþykkt um fjölgun liða í úrvalsdeild kvenna. Samkvæmt henni verður liðunum fjölgað úr átta liðum í tíu liða úrvalsdeild. Af 49 atkvæðum á þinginu voru sex sem kusu gegn þessari breytingu. Þar með ljóst að eftirfarandi lið eiga sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð: Valur, ÍBV, Haukar, Fram, ÍR, KA/Þór, Stjarnan, HK, Grótta, Víkingur. Liðin sem leika í Grill66-deild kvenna verða: Selfoss, FH, Afturelding, Fjölnir auka venslaliða. Þingskjal 6 sem fól í sér bráðabirgðaákvæði um heimild til að breyta mótafyrirkomulaginu strax í haus. Var það samþykkt með meiri hluta atkvæða. Breytingarnar taka því strax gildi frá og með næsta tímabili. Ályktun Stjörnunnar um fækkun á leikskýrslu í meistaraflokki kvenna úr 16 leikmönnum í 14 leikmenn var felld. Það verður því áfram heimilt að vera með 16 leikmenn á leikskýrslu bæði í karla og kvennaflokki en því var breytt í heimsfaraldrinum, Covid-19 á sínum tíma og hefur haldist óbreytt síðan þá.



Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.