William Skovsager semur við Þór
(Þór Handbolti)

William Skovsager hefur samið við Þór en Þórsarar tilkynntu um þetta nú rétt í þessu á Facebook síðu sinni.

William Skovsager er rétthent skytta sem gengur til liðsins frá Kyndli í Færeyjum þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.

Hér má sjá tilkynningu frá Þór:

William kemur til okkar eftir farsæl ár í Færeyjum þar sem hann lék með Kyndil, þar áður spilaði hann með Skive í Danmörku.

William er rétthent vinstri skytta sem getur leyst allar stöðurnar fyrir utan. Hann er fæddur árið 2001 í Skive og spilaði þar upp alla yngri flokkana og alveg þangað til hann færði sig yfir til Færeyja.

Við bjóðum William hjartanlega velkominn í Þorpið!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top