Bjarni í borgarstjórn – Tekur Óli Stef við ÍR?
Sævar Jónasson

Fyrrum landsliðsmaðurinn og þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR, Bjarni Fritzson, hefur stigið nýtt skref á ferli sínum eftir að niðurstöður kosninga helgarinnar lágu fyrir. Bjarni fékk þar sæti í borgarstjórn sem 8. maður Sjálfstæðisflokksins.

Nú er hinsvegar stór spurning hvað verður um Bjarna hjá ÍR en Bjarni hefur stýrt karlaliði ÍR undanfarin ár. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Ég fór strax að velta því fyrir mér hvað þetta myndi gera fyrir karlalið ÍR. Það er alveg dæmi um það að fundir teygjast langt  fram eftir  degi og eru frameftir. Ég átti vin sem var í þessu á sínum tíma og hvort það hafi ekki verið þriðjudagsfundir sem eru alltaf seinni partinn. Síðan dragast málefni og málþóf eins og er á þinginu. Ég held að það sé mjög erfitt að vera í þessu og vera síðan í öðru starfi sem þú þarft að vera mættur seinni partinn, varðandi leiki og æfingar," sagði Stymmi klippari áður en Einar Ingi Hrafnsson tók til máls.

,,Bjarni brennur greinilega fyrir þessu og hefur mikinn áhuga á þessu. Breiðhyltingar eru mjög ánægðir með að vera loksins komnir með mann inn í borgarstjórn sem brennur fyrir Breiðholt. Það er ákveðin vinna sem fylgir þessu og þetta er númer eitt. Þú segir ekkert á einhverjum borgarstjórnarfundi, ég þarf að skjótast það er æfing.”

,,Við höfum heyrt af því að Óli Stef hefur verið að þjálfa og gerði mánaðarsamning við ÍR og þjálfaði liðið meðan Bjarni var í kosningarbaráttu. Sjáið þið fram á það að Óli taki við liðinu og Bjarni verði honum til halds og trausts?” velti Sérfræðingurinn upp.

,,Ég sé Bjarna ekki fyrir mér fara alfarið úr ÍR en hann verður að minnka við sig og vera meira sveigjanlegri. Hvort hann verði aðstoðarþjálfari og fái góðan mann með sér. Efniviðurinn er til staðar í Breiðholtinu en ég held að það sé ógerlegt að vera í öðru starfi með því að vera í borgarstjórn,” sagði Stymmi klippari.

,,Fyrst og fremst hefur Bjarni lofað sig í þjálfarastarfið gagnvart leikmönnum og öðrum. Ég held að hann komist ekki upp með það að taka þetta ekki. Þetta verður saumað einhvernveginn saman, eigum við ekki að segja að það sé smá lukka að ÍR-ingarnir séu í Grill66-deildinni, það verður minni hiti á honum," sagði Einar Ingi að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top