Markvörður Kolstad í norsku úrvalsdeildinni, Sigurjón Guðmundsson gæti verið á heimleið og hafa Valsarar áhuga að fá hann til sín. Sigurjón gekk í raðir Kolstad sumarið 2024 frá uppeldisfélagi sínu HK en honum var ætlað að vera þriðji markvörður liðsins og leika með venslaliði félagsins, Charlottenlund. Það breyttist hinsvegar fljótt en í fyrra var Andreas Palicka að glíma við meiðsli og á skömmum tíma var Sigurjón farinn að standa vaktina bæði í norsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu. Andreas Palicka yfirgaf síðan félagið í janúar en félagið sem er í miklum fjárhagsvandræðum hefur misst marga lykilmenn undanfarna mánuði. Það hefur opnað enn stærri dyr fyrir Sigurjón sem nú stendur í ströngu með liðinu í úrslitaeinvíginu um norska meistaratitilinn en liðið er þar í einvígi gegn Drammen. Handkastið fékk veður af því um helgina að Sigurjón væri farinn að selja búslóð sína á norskri Facebook síðu og ýtti það enn frekar undir þann orðróm að hann og kærasta hans, Elna Ólöf Guðjónsdóttir fyrrum leikmaður HK og Fram væru að huga að flutningum. Handkastið hefur heyrt af því að Valur hafi haft samband við Sigurjón á þessu ári og athugað áhuga hans á að ganga í raðir Hlíðarendafélagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.