Norðmaðurinn framlengir í Ungverjalandi
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Norski handknattleiksmaðurinn Magnus Rød hefur framlengt samning sinn við ungverska stórliðið Pick Szeged til eins árs og verður því áfram í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Félagið tilkynnti þetta í vikunni.

Magnus Rød, sem er fastamaður í norska landsliðinu gekk til liðs við Pick Szeged fyrir tveimur árum eftir að hafa vakið mikla athygli með frammistöðu sinni í þýsku úrvalsdeildinni en hann átti stutt stop hjá Kolstad áður en hann fór til Ungverjaland. Frá komu sinni hefur hann verið einn af lykilmönnum liðsins, bæði í ungversku deildinni og í Meistaradeild Evrópu.

Á síðasta tímabili átti Rød stóran þátt í velgengni Pick Szeged þegar liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn í Ungverjalandi. Félagið hefur á undanförnum árum verið eitt sterkasta lið landsins og hefur reglulega barist við erkifjendurna í Veszprém um stærstu titlana.

Íslendingurinn, Arnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður Norðmannsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top