Tekur þjálfari PSG við HØJ?
ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP

Samkvæmt Facebook-síðunni Handballtransfer er danski þjálfarinn Stefan Madsen orðaður sem næsti þjálfari danska félagsins HØJ Elite. Stefan Madsen er í dag þjálfari Paris Saint Germain á sínu fyrsta tímabili en árangur liðsins í vetur hefur valdið vonbrigðum.

Hefur mikil umræða verið uppi um að Stefan Madsen verði ekki við stjórnvölinn hjá PSG á næsta tímabili. Engin opinber staðfesting hefur þó komið frá Madsen sjálfum né HØJ Elite.

Madsen hefur verið einn eftirsóttasti þjálfari Evrópu undanfarin ár eftir afar farsælan tíma hjá Álaborg, þar sem hann stýrði liðinu til margra titla og tvívegis í Final4 í Meistaradeildinni. Hann yfirgaf félagið árið 2024 eftir rúman áratug hjá Álaborg til að leita nýrra áskorana. 

HØJ Elite hefur á síðustu árum vakið athygli fyrir mikla uppbyggingu og stór nöfn innan félagsins. Liðið féll nýverið úr dönsku úrvalsdeildinni og en félagið hefur fjárfest verulega í leikmannahópi sínum með leikmönnum á borð við Hampus Wanne, Michael Damgaard og Hans Lindberg undanfarin ár.

Enn fleiri og stærri nöfn ganga í raðir félagsins í sumar þrátt fyrir að liðið leiki í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top