Það er komið að úrslitahelginni í Meistaradeild Evrópu, svokölluð Final 4 helgi í Köln. Magdeburg eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir sigur á Fuchse Berlín á síðasta ári. Fyrri undanúrslitaleikurinn fer fram á morgun klukkan 13:00 þegar Magdeburg og Fuchse Berlín mætast og Álaborg og Barcelona mætast í seinni leik dagsins. Úrslitaleikurinn og leikurinn um 3.sætið fara síðan fram á sunnudaginn. Mathias Gidsel leikmaður Fuchse Berlín er lang markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á þessu tímabili en hann hefur skorað 143 mörk. Francisco Costa leikmaður Sporting kemur næstur með 136 mörk og Elohim Prandi leikmaður PSG hefur skorað 120 mörk. Thomas Arnoldsen leikmaður Álaborgar verður í eldlínunni um helgina hefur skorað 95 mörk og Ómar Ingi Magnússon 86 mörk en þeir eru í 9. og 10. sæti yfir markahæstu leikmenn Meistaradeildarinnar á þessu tímabili. Allir leikmennirnir fyrir ofan þá, að undanskildum Mathias Gidsel leika ekki fleiri leiki í Meistaradeildinni á tímabilinu. Það má því fastlega gera ráð fyrir því að Mathias Gidsel endi sem markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.