Verður Sellin áfram hjá HC Erlangen?
Tom Weller / AFP

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá HC Erlangen í þýsku Bundesligunni undanfarnar vikur. Þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni er liðið með 19 stig í 14.sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti en þó ekki í fallhættu þar sem liðið er með töluvert betri markatölu heldur en Minden sem er fjórum stigum á eftir Erlangen.

Erlangen hefur tapað fimm leikjum í röð og sjö af síðustu átta leikjum liðsins í deildinni. Þá hefur liðið aðeins unnið tvo leiki eftir áramót.

„Þetta var tímabil þar sem við vorum einfaldlega með alltof marga fjarverandi leikmenn, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins, sem við bættum að hluta upp með því að gefa ungu leikmönnunum stærra hlutverk," sagði Johannes Sellin þjálfari liðsins þegar hann fer yfir stormasamt tímabil félagsins.

,,Það var einmitt þetta sem við settumst niður og ræddum fyrir um ári eða einu og hálfu ári síðan, hvernig við vildum endurskipuleggja hópinn og hvernig við ætluðum að endurræsa allt verkefnið.“

HC Erlangen hefur glímt við mikil meiðsla vandræði en til að mynda hafa landsliðsmennirnir, Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson lítið sem ekkert getað spilað með liðinu eftir áramót. Á engum tímapunkti tímabilsins hafði Sellin allan leikmannahópinn tiltækan í keppnisleik. Í aðeins fimm leikjum var „aðeins“ einn leikmaður frá vegna meiðsla, en í tíu leikjum voru fjórir eða fleiri frá.

Sellin segist vera stoltur af þeirri þróun sem ungu leikmennirnir sem hafa fengið stærra hlutverk í vetur, hafa tekið. En verður hann áfram við stjórnvölinn á næsta tímabili?

Í júní 2024 tilkynnti HC Erlangen að samningur Sellin hefði verið framlengdur til sumarsins 2026, eða til loka núverandi tímabils. Síðan þá hefur hann verið færður úr starfi og Martin Schwalb ráðinn þjálfari liðsins.

En Sellin tók síðan aftur við sem aðalþjálfari liðsins í febrúar í fyrra. Þegar Sellin var spurður hvort samningur hans gilti aðeins út tímabilið svaraði hann: „Ég er með samning sem gildir lengur,“ án þess þó að gefa upp nákvæma tímalengd.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top