
Handknattleiksdeild FH hefur boðað til blaðamannafundar í veislusal Kaplakrika á morgun klukkan 13:30. Í tilkynningunni frá FH segir að efni fundarins snúist að þjálfaramálum meistaraflokks karla og nýjum aðalstyrktaraðila handknattleiksdeildar FH. Er Aron Pálmarsson að taka við FH? Handkastið greindi frá því fyrst allra miðla í vikunni að Aron Pálmarsson væri að taka við karlaliði FH af Sigursteini Arndal en Aron kom inn sem aðstoðarþjálfari liðsins á miðju tímabili. Gera má fastlega ráð fyrir því að á morgun verði Aron Pálmarsson kynntur sem nýr þjálfari FH liðsins en samkvæmt heimildum Handkastsins mun Sigursteinn Arndal verða aðstoðarþjálfari liðsins. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.