

Handboltaleikur fór úr böndunum þegar flugeldar voru skotnir inn á keppnisvöllinn og leikurinn stöðvaður tímabundið vegna öryggisáhyggja í Serbíu í gær. Um var að ræða annan leik í úrslitaeinvíginu í serbnesku úrvalsdeildinni sem snarhætt um miðjan fyrri hálfleik. Staðan var þá 6-5 fyrir RK Vojvodina gegn Partizan Belgrade en áhorfendur skutu flugeldum í átt að leikmönnum. Partizan Belgrade vann fyrri leik liðanna 33-27. Leikmenn, dómarar og starfsfólk brugðust skjótt við og yfirgáfu hluta vallarins á meðan reynt var að ná stjórn á aðstæðum. Áhorfendur lýstu ringulreið og spennu í stúkunni eftir að flugeldarnir fóru af stað. Sumir yfirgáfu sæti sín á meðan aðrir fylgdust agndofa með því sem fram fór. Þar sem leikurinn fór fram á heimavelli RK Vojvodina í gær og áhorfendur heimaliðsins báru ábyrgð á flugeldunum hefur Partizan Belgrade verið dæmdur 10-0 sigur og er því eins og staðan er í dag, 2-0 yfir í einvíginu. Það má þó hinsvegar gera ráð fyrir því að RK Vojvodina áfrýji þeirri niðurstöðu. Áður hafði flugeldum verið skotið inn á völlinn á 2. mínútu leiksins en leikurinn hélt áfram eftir það atvik en mönnum var nóg boðið þegar þetta endurtók sig aftur eftir rúmar 15 mínútur af leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.