Norskur landsliðsmaður í dönsku B-deildina
Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP

Norski landsliðslínumaðurinn Thomas Solstad mun leika með danska liðinu HØJ Elite á næstu leiktíð eftir að hafa ákveðið að ganga til liðs við félagið frá þýska Bundesliguliðinu TSV Hannover-Burgdorf.

Solstad verður þar með einn af nokkrum þekktum leikmönnum sem hafa ákveðið að taka þátt í metnaðarfullu verkefni félagsins, en áður hafði HØJ tryggt sér meðal annars starfskrafta dönsku landsliðsmannanna Lasse Andersson og Jannick Green.

Mikil óvissa skapaðist þó í kringum framtíð félagsins þegar HØJ féll óvænt úr dönsku úrvalsdeildinni eftir tap gegn KIF Kolding í umspili um sæti í deildinni á dögunum. Fallið vakti athygli þar sem félagið hafði þegar gengið frá samningum við fjölda sterkra leikmanna áður en niðurstaðan lá fyrir.

Þrátt fyrir niðurstöðuna ákváðu bæði Andersson og Green að standa við samninga sína og virðist það hafa róað stöðuna innan félagsins. Nú hefur Solstad einnig staðfest komu sína og verður honum ætlað stórt hlutverk í að hjálpa HØJ að komast strax aftur upp í efstu deild.

Hinn 29 ára gamli Norðmaður kemur með mikla reynslu inn í hópinn, sem lítur út fyrir að verða eitt öflugasta lið sem sést hefur í dönsku B-deildinni um árabil.

Fyrir eru leikmenn á borð við sænska landsliðsmanninn Hampus Wanne og þá er væntanlegur til félagsins hinn afar efnilegi Axel Månsson frá IFK Kristianstad, að því gefnu að engar breytingar verði á þeim áformum í sumar.

Færeyski landsliðslínumaðurinn, Ísak Vedelsbøl gengur einnig í raðir danska félagsins frá Savehof í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top