Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld. Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer gerðu góða ferð til Erlangen og unnu sex marka útisigur 26-32. Með sigrinum fór Bergischer upp fyrir Erlangen í deildinni og eru komnir í 14.sætið með 20 stig en Erlangen er í 15. sæti með 19 stig. Með sigrinum gulltryggði nýliðarnir í Bergischer sér sæti í deildinni á næsta tímabili. Noah Beyer var markahæstur í liði Bergischer með 13 mörk og Tobias Buck skoraði sjö fyrir Erlangen. Í hinum leik kvöldsins vann Fuchse Berlín þriggja marka sigur á útivelli gegn Eisenach 38-41 eftir að hafa verið 14-17 yfir í hálfleik. Mathias Gidsel var markahæstur á vellinum með ellefu mörk og Lasse Andersson skoraði tíu mörk. Hjá Eisenach var Oskar Joelsson markahæstur með átta mörk og gaf sjö stoðsendingar. Fuchse Berlín er í 2.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 51 stig, tveimur stigum meira en Flensburg sem á leik til góða. Úrslit kvöldsins: Eisenach - Fuchse Berlín 38-41
Erlangen - Bergischer 26-32

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.