Wolff hetja Kiel sem leika til úrslita á morgun
Philipp Szyza /AFP

Fyrri undanúrslitaleikur Evrópudeildarinnar lauk nú rétt í þessu er Kiel vann eins marks sigur á franska félaginu Montpellier. Lokatölur 29-28 fyrir Kiel en Andy Wolff var hetja Kiel í leiknum en hann fór á kostum undir lok leiks og varði tvö skot á síðustu sekúndum leiksins, annað úr dauðafæri af línunni.

Kiel leiddi í hálfleik 15-12 en franska félagið byrjaði seinni hálfleikinn betur og komst yfir í stöðunni 19-20 og tvöfaldaði forystuna í stöðunni 20-18. En þá kom 6-1 kafli hjá Kiel sem breytti stöðunni í 24-21.

Þjóðverjarnir voru skrefi á undan undir lok leiks en Eric Johansson skoraði sigurmarkið tuttugu sekúndum fyrir leikslok. Montpellier fóru illa að ráði sínu af vítalínunni í leiknum og klikkuðu fjölmörgum vítaköstum.

David Balaguer var markahæstur allra á vellinum í Lanxess Arena og skoraði átta mörk fyrir Montpellier. Eric Johansson var markahæstur í liði Kiel með sex mörk.

Andy Wolff var með 33% markvörslu í marki Kiel og Remi Desbonnet var með 37% markvörslu í marki Montpellier.

Kiel mætir annað hvort Melsungen eða Flensburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en þau lið mætast klukkan 13:30. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun.

30 May 2026, Hamburg: Handball, Men: EHF European League, Montpellier HB - THW Kiel, Final Four, semi-final, Barclays Arena. Kyllian Villeminot (Montpellier HB) against Andreas Wolff (THW Kiel). Photo: Philipp Szyza/dpa (Photo by Philipp Szyza / dpa Picture-Alliance via AFP)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top