
Franska handboltagoðsögnin, Cédric Sorhaindo, hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá rúmenska stórliðinu Dinamo Búkarest. Þetta markar nýjan kafla á ferli Sorhaindo eftir meira en tvo áratugi á hæsta stigi handboltans. Sorhaindo er ekki ókunnugur félaginu en hann lék með Dinamo Búkarest á árunum 2021 til 2023. Nú snýr hann aftur til félagsins, að þessu sinni utan vallar. Samkvæmt heimildum verður Sorhaindo í lykilhlutverki innan íþróttastarfs félagsins. Hann mun meðal annars koma að skipulagsmálum og samskiptum í kringum liðið, auk þess að gegna mikilvægu hlutverki í tengslum félagsins við rúmenska handknattleikssambandið. Hin nýja staða er fyrsta stóra stjórnunarhlutverk Sorhaindo eftir glæsilegan leikmannaferil. Frakkinn var um árabil einn besti línumaður heims, vann fjölda titla með Barcelona og var jafnframt fyrirliði franska landsliðsins. Endurkoma hans til Dinamo er því talin styrkja félagið verulega utan vallar, þar sem reynsla hans og tengsl innan alþjóðlegs handbolta gætu reynst verðmæt í áframhaldandi uppbyggingu rúmenska meistaraliðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.