Ohrid urðu Evrópubikarmeistarar eftir sannfærandi sigur
EHF

Norður-makedónska liðið Ohrid varð í gær Evrópubikarmeistari karla eftir öruggan 31-25 sigur á ungverska liðinu Tatabánya í síðari úrslitaleik keppninnar. Þetta er fyrsti Evróputitill í sögu félagsins.

Ohrid hafði unnið fyrri leik liðanna í Ungverjalandi með eins marks mun, 29-28, og fór því með gott veganesti inn í seinni leikinn á heimavelli sínum fyrir framan troðfulla höll. Með sex marka sigri tryggði liðið sér samanlagðan sigur og Evrópubikarinn.

Heimamenn náðu snemma frumkvæðinu í leiknum og leiddu 7-4 eftir rúman stundarfjórðung. Tatabánya náði þó að svara fyrir sig og tók um tíma forystuna í fyrri hálfleik, en staðan í leikhléi var 12-11 fyrir Ohrid.

Ohrid hóf seinni hálfleikinn af miklum krafti og skoraði þrjú fyrstu mörkin. Það forskot reyndist gestunum ofviða og heimaliðið hélt stjórn á leiknum allt til loka. Japanski leikmaðurinn í liði Ohrid, Kosuke Yasuhira var markahæstur með níu mörk.

Titillinn markar sögulegan áfanga fyrir félagið, sem var endurreist árið 2011 og hafði aðeins takmarkaða reynslu af Evrópukeppni áður en þetta tímabil hófst. Ohrid vann alla heimaleiki sína í keppninni og skrifaði með sigrinum nýjan kafla í sögu félagsins.

Þetta er jafnframt annað árið í röð sem lið frá Norður-Makedóníu vinnur Evrópubikarinn, sem undirstrikar framfarir landsins á evrópskum handboltavettvangi en Alkaloid vann keppnina í fyrra og Valur árið þar áður.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top