Tíki Fridriksson hefur gengið í raðir Stjörnunnar í Olís-deild karla og gerir tveggja ára samning við félagið. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Tóki sem er fæddur árið 2005 gengur í raðir Stjörnunnar frá færeyska félaginu KíF þar sem hann er uppalinn. ,,Tóki er stór og stæðilegur línumaður sem tekur mikið til sín. Hann hefur þegar spilað fjögur tímabil í efstu deild í Færeyjum þrátt fyrir að vera einungis 21 árs. Hann var einnig hluti af U21 liði Færeyja sem náði sér í bronsverðlaun á HM U21 liða arið 2025," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni en Tóki skoraði 56 mörk í 18 leikjum á síðasta tímabili með KíF. ,,Það ríkir mikil ánægja innan Stjörnunnar að fá Tóka til félagsins og teljum að hann styrki liðið mikið. Við bjóðum Tóka hjartanlega velkominn í Garðabæinn og bíðum spennt eftir að sjá hann í bláu treyjunni," segir enn frekar. Viktor Lekve er þjálfari KíF en Viktor Lekve og Sverrir Eyjólfsson þjálfari Stjörnunnar þjálfuðu saman Fjölni í Grill66-deildinni fyrir nokkrum árum. Tóki verður annar Færeyingurinn í liði Stjörnunnar en Jóhannes Björgvin hefur leikið með liðinu síðustu tvö tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.