Sænski handknattleiksþjálfarinn Magnus Andersson er líklegastur til að taka við sem landsliðsþjálfari norska karlalandsliðsins samkvæmt heimildum norska fjölmiðilsins VG. Bæði Kristian Kjelling, þjálfari Drammen og Børge Lund hjá Elverum voru meðal þeirra sem komu til greina í starfið. Þeir hafa hins vegar nú fengið þær upplýsingar að þeir verði ekki ráðnir. „Ég get staðfest þetta. Að öðru leyti hef ég enga athugasemd,“ sagði Kristian Kjelling við VG. Kjelling sóttist einnig eftir starfinu þegar það var laust árið 2022. Þá virðist einnig ljóst að Stefan Madsen, þjálfari PSG, hafi ekki orðið fyrir valinu. Magnus Andersson sem er sextugur, lét nýverið af störfum sem þjálfari hjá Porto. Gert er ráð fyrir að norska handknattleikssambandið kynni nýjan landsliðsþjálfara síðar í vikunni. Hvorki Andersson né framkvæmdastjóri sambandsins Erik Langerud né forseti þess Randi Gustad höfðu svarað fyrirspurnum VG í gærkvöldi. Magnus Andersson á að baki glæsilegan feril sem leikmaður. Hann varð tvívegis heimsmeistari með sænska landsliðinu á tíunda áratugnum sem hluti af hinu fræga „Bengan Boys“-liði. Hann hóf þjálfaraferil sinn árið 2001 samhliða leikmannaferlinum og hefur síðan stýrt fjölda sænskra og danskra félaga auk þýska félagsins Frisch Auf Göppingen. Síðustu átta ár hefur hann starfað í Portúgal. Andersson hefur reynslu af landsliðsþjálfun en hann stýrði austurríska landsliðinu tímabilið 2010–2011. Norska landsliðið hefur þegar tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi á næsta ári. Samkvæmt fréttum TV 2 kemur danski þjálfarinn Henrik Kronborg til greina sem aðstoðarþjálfari Anderssons. Kronborg hefur frá árinu 2016 verið hægri hönd landsliðsþjálfarans Nikolaj Jacobsen hjá danska landsliðinu en hætti nýverið. Sérfræðingur NRK, Håvard Tvedten, nefndi Kronborg sem mögulegan kost eftir að Norðmenn enduðu í 10. sæti á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Kronborg er jafnframt aðstoðarþjálfari hjá Álaborg, þar sem meðal annars leika norsku landsliðsmennirnir Sander Sagosen, Alexander Blonz, Patrick Helland Anderson og Vetle Rønningen. Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Kristian Bjørnsen hefur átt sæti í nefnd sem hefur leitað að arftaka Jonas Wille, sem fékk ekki endurnýjaðan samning í mars. Bjørnsen hefur meðal annars haft það hlutverk að eiga samskipti við leikmenn landsliðsins í ráðningarferlinu. Einnig er talið mögulegt að fyrrverandi landsliðsfyrirliðinn Bjarte Myrhol fái hlutverk í nýrri landsliðsstjórn. Myrhol þekkir Kronborg vel eftir að hafa leikið undir hans stjórn hjá Skjern Håndbold. „Aðrir standa framar mér í röðinni þegar kemur að starfi aðalþjálfara. Ég tel þó að ég hafi ýmislegt fram að færa fyrir norskan handknattleik, bæði á grasrótarstigi og hjá landsliðinu,“ sagði Bjarte Myrhol við VG fyrir tveimur vikum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.