Melsungen hagnast á tapi gegn Berlín
Philipp Szyza /AFP

Þrátt fyrir að hafa nýverið unnið sinn fyrsta titil í sögu félagsins er enn óljóst hvort MT Melsungen leikur í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Melsungen tryggði sér um helgina sigur í Evrópudeildinni með óvæntum sigri á THW Kiel og vann þar með fyrsta stóra titil félagsins frá stofnun þess. Þar með er þó ekki enn fullvíst að Evrópudeildarmeistararnir fái sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Það ræðst að miklu leyti af gengi Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni. Takist Berlínarliðinu að halda 2. sæti deildarinnar fær Melsungen sjálfkrafa sæti í Meistaradeildinni sem sigurvegari Evrópudeildarinnar.

Því blasir við óvenjuleg staða þegar liðin mætast í deildinni á fimmtudag.

Þótt Melsungen sem siglir lygnan sjó í 7.sæti deildarinnar stefni eðlilega að sigri gæti tap í raun reynst félaginu hagstæðara til lengri tíma litið. Sigur fyrir Berlín myndi styrkja stöðu liðsins í baráttunni um 2. sætið og þar með auka líkurnar á að Melsungen tryggi sér sæti í Meistaradeildinni.

Füchse Berlín er í 2.sæti deildarinnar með 51 stig þegar tvær umferðir eru eftir en Flensburg-Handewitt er í 3.sætinu með 49 stig. Füchse Berlin og Flensburg mætast í lokaumferðinni en þar sem Berlínar-liðið er með töluvert betri markatölur nægir það liðinu að vinna aðeins annan af tveimur síðustu leikjum sínum til að tryggja sér 2.sætið.

Staðan gæti orðið flóknari ef Berlín missir 2. sætið til SG Flensburg-Handewitt. Þá þyrfti Melsungen að treysta á að Berlínar-liðið vinni ekki úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í Köln.

Ef Berlínar-liðið vinnur Meistaradeildina og endar jafnframt utan tveggja efstu sæta Bundesligunnar myndi félagið tryggja sér Meistaradeildarsætið sem ríkjandi Evrópumeistari á kostnað Melsungen þar sem að hámarki þrjú þýsk lið geta tekið þátt í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Félagið stendur í frammi fyrir mjög erfiðum aðstæðum í leiknum gegn Füchse Berlin. Á meðan leikmenn Melsungen munu án efa leggja allt í sölurnar til að vinna leikinn á fimmtudag er staðreyndin sú að tap gæti reynst verðmætara í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top