Magnus Andersson tekur við Noregi
NHF

Norska handknattleikssambandið hefur tilkynnt að Magnus Andersson sé tekinn við norska karla landsliðinu og tekur við liðinu af Jonas Wille.

Henrik Kronborg fyrrum aðstoðarþjálfari danska landsliðsins og aðstoðarþjálfari Álaborgar verður aðstoðarmaður Magnusar með norska landsliðið. Magnus tekur við liðinu eftir að hafa stýrt Porto undanfarin ár.

,,Ég er afar stoltur og mjög ánægður," sagði Magnus Andersson við fjölmiðla í Noregi eftir að hann var tilkynntur.

Magnus Andersson sem er sextugur, lét nýverið af störfum sem þjálfari hjá Porto. Gert er ráð fyrir að norska handknattleikssambandið kynni nýjan landsliðsþjálfara síðar í vikunni. Andersson hefur reynslu af landsliðsþjálfun en hann stýrði austurríska landsliðinu tímabilið 2010–2011.

Norska landsliðið hefur þegar tryggt sér sæti á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi á næsta ári og verður það fyrsta stórmót Magnus Andersson með norska liðið. Dregið verður í riðla á heimsmeistaramótið í næstu viku í München.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top