Leikjaniðurröðunin fyrir Olís-deild karla á næstu leiktíð liggur fyrir en stefnt er á að Olís-deild karla hefjist fimmtudaginn 3.september. Nýliðar Víkings fara í Mosfellsbæinn í 1.umferðinni og mæta þar Aftureldingu. Íslands- og deildarmeistarar Vals fara á Selfoss og bikarmeistarar Hauka fá ÍBV í heimsókn. Fyrsti leikur Arons Pálmarssonar sem þjálfari FH verður á heimavelli gegn Stjörnunni. HK fær KA í heimsókn og Fram tekur á móti Þór. Í 2.umferðinni verður Reykjavíkurslagur þegar Valur tekur á móti Fram. Fyrstu tvær umferðirnar í Olís-deild karla má sjá hér að neðan en alla leikjaniðurröðunina má sjá á eldri vef HSÍ.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.