Ída Margrét og Ísak Óli best í Grill66-deildunum
Eyjólfur Garðarsson

Á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ voru þau Ída Margrét Stefánsdóttir úr Gróttu og Ísak Óli Eggertsson úr Víkingi valin leikmenn tímabilsins í Grill66 deildum kvenna og karla. Bæði léku stórt hlutverk hjá liðum sínum, Ída Margrét var einnig valin besti varnarmaðurinn og Ísak Óli var valinn besti sóknarmaðurinn.

Bestu markmenn Grill66-deildanna komu úr Gróttu, þau Hannes Pétur Hauksson og Andrea Gunnlaugsdóttir.

Hér að neðan má sjá verðlaunahafana úr Grill66-deildum karla og kvenna.

Grill66-deild karla:

Leikmaður tímabilsins: Ísak Óli Eggertsson - Víkingur

Sóknamaður tímabilsins: Ísak Óli Eggertsson - Víkingur

Varnarmaður tímabilsins: Sigurður Páll Matthíasson - Víkingur

Markmaður tímabilsins: Hannes Pétur Hauksson - Grótta

Efnilegastur: Brynjar Narfi Arndal - ÍH

Þjálfari tímabilsins: Aðalsteinn Eyjólfsson - Víkingur

Grill66-deild kvenna:

Leikmaður tímabilsins: Ída Margrét Stefánsdóttir - Grótta

Sóknarmaður tímabilsins: Katrín Helga Davíðsdóttir - Afturelding

Varnarmaður tímabilsins: Ída Margrét Stefánsdóttir - Grótta

Markmaður tímabilsins: Andrea Gunnlaugsdóttir - Grótta

Efnilegust: Laufey Helga Óskarsdóttir - Valur 2

Þjálfari tímabilsins: Hilmar Guðlaugsson - HK

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top