Bergischer gæti leikið í Evrópudeildinni í fyrsta sinn
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Þýska liðið Bergischer HC er farið að undirbúa mögulega þátttöku í Evrópudeildinni á næstu leiktíð, þrátt fyrir að vera í 14. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar þegar ein umferðir er eftir.

Liðið tryggði sér endanlega áframhaldandi veru í deildinni með öruggum 32-26 útisigur gegn Erlangen og gat því farið að hefja undirbúning fyrir næsta tímabil af fullum krafti. Arnór Þór Gunnarsson er einn af tveimur þjálfurum liðsins en liðið er nýliði í þýsku úrvalsdeildinni.

Bergischer HC vann sér inn ákveðna von um Evrópusæti með því að hafna í öðru sæti í þýsku bikarkeppninni þar sem liðið beið lægri hlut gegn Fuchse Berlín. Ef Fuchse Berlín endar í 2.sæti þýsku deildarinnar færist Evrópudeildarsæti þeirra yfir til Bergischer þar sem Berlínarliðið vinnur sér þar með rétt á að leika í Meistaradeild Evrópu.

Berlínarliðið getur tryggt sér 2.sætið í deildinni með sigri á MT Melsungen í kvöld.

Að sögn framkvæmdastjóra Bergischer, Jörg Förste er félagið þegar farið að undirbúa sig fyrir þá sviðsmynd.

„Við höfum hafið undirbúning fyrir Evrópudeildina. Hins vegar þurfum við leikvöll. Sambandið gerir þá kröfu að hægt sé að halda sex leiki í viðkomandi höll. Við höfum leitað til aðila í Wuppertal, Solingen og Düsseldorf um aðstöðu. Sambandið vill fá svar frá okkur fyrir næsta mánudag,“ sagði Förste í samtali við WDR.

Höllin gæti ráðið úrslitum

Óvissa hefur ríkt um hvaða skilyrði þurfi að vera uppfyllt til að Bergischer HC komist í Evrópudeildina. Samkvæmt upplýsingum sem Handball-world fékk frá Evrópska handknattleikssambandinu virðist það þó nú liggja fyrir.

„Bergischer HC hefur tryggt sér sæti í Evrópudeildinni þar sem Füchse Berlin hefur þegar unnið sér inn þátttökurétt í Evrópukeppni, annaðhvort Meistaradeildinni eða Evrópudeildinni, í gegnum lokastöðu sína í Bundesligunni,“ sagði í svari EHF.

Nú er bara spurning hvort Bergischer takist að tryggja viðurkenndan heimavöll fyrir heimaleiki sína í Evrópudeildinni á næstu leiktíð, völl sem uppfyllir kröfur EHF.

Takist það gæti Bergischer HC leikið sína fyrstu Evrópuleiki í sögu félagsins á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top