Mikil sorg ríkir í frönskum handknattleik eftir að Franck Bulleux, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka og reynslumikill þjálfari, lést á dögunum 66 ára að aldri. Bulleux átti langan og farsælan feril innan handboltans, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann lék sem skytta og spilaði tvo A-landsleiki fyrir Frakkland árið 1980. Á félagsliðsferlinum var hann lykilmaður hjá ACBB, þar sem hann lék í efstu deild Frakklands á árunum 1978 til 1987. Að leikmannaferlinum loknum sneri hann sér að þjálfun og stýrði meðal annars Istres frá 1997 til 2001. Undir hans stjórn vann félagið sér sæti í efstu deild franska handboltans. Síðar tók Bulleux við þjálfun karlalandsliðs Senegal og gegndi því starfi á árunum 2011 til 2015. Hann stýrði liðinu meðal annars á tveimur Afríkumótum landsliða. Frá árinu 2017 var hann tengdur félaginu Martigues, fyrst sem þjálfari og síðar sem framkvæmdastjóri. Félagið leikur í þriðju efstu deild Frakklands. Franck Bulleux var einnig faðir Chloé Bulleux, sem átti glæsilegan handboltaferil. Hún lék meðal annars með Nîmes og Paris 92, spilaði 26 landsleiki fyrir Frakkland og vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Rio de Janeiro árið 2016.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.