Afturelding hefur tilkynnt Ingimund Ingimundarson og Hrannar Guðmundsson sem nýja þjálfara meistaraflokks karla 56 dögum eftir að Stefáni Árnasyni var sagt upp störfum sem þjálfara liðsins eftir að liðið tapaði í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins gegn Haukum í oddaleik. Handkastið greindi frá því í morgun að Hrannar og Ingimundur myndu taka við liðinu en það hefur legið fyrir í lengri tíma að Hrannar myndi taka við liðinu en leit af aðstoðarmanni hans hefur tekið sinn tíma. Hrannar snýr aftur í Mosfellsbæinn þar sem hann er uppalinn en hann hefur stýrt karla og kvennaliði Stjörnunnar undanfarin ár. Þá var hann í þjálfarateymi FH í skamman tíma og þá var hann einnig aðstoðarþjálfari ÍR. Þá er Hrannar hluti af þjálfarateymi A-landsliðs karla. Ingimundur Ingimundarson kemur inn í þjálfarateymið með Hrannari en hann hefur stýrt yngri flokkum hjá Val undanfarin ár. Þá var hann í þjálfarateymi Akureyrar frá 2016-2018. Ingimundur var lykilmaður í einu sigursælasta landsliði Íslands frá upphafi, vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2008 og bronsverðlaun á Evrópumótinu 2010, auk þess að leika 123 A-landsleiki fyrir Ísland. Sem leikmaður átti Ingimundur afar farsælan feril bæði hér heima og erlendis og lék meðal annars sem atvinnumaður í Sviss, Danmörku, Noregi og Þýskalandi. ,,Við erum afar stolt af því að fá Hrannar og Ingimund til liðs við okkur. Hrannar þekkir félagið, menninguna og umhverfið í Mosfellsbæ út og inn, á meðan reynsla og þekking Ingimundar mun nýtast félaginu afar vel, ekki síst í áframhaldandi þróun ungra og efnilegra leikmanna Aftureldingar. Saman mynda þeir metnaðarfullt og öflugt þjálfarateymi sem mun leiða meistaraflokk karla inn í spennandi framtíð og áframhaldandi uppbyggingu á meðal fremstu liða landsins," segir í tilkynningu félagsins en Afturelding endaði í 6.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.