Dagur og Ásdís heiðruð fyrir fyrirmyndar hegðun
HSÍ

Handknattleiksdómarasamband Íslands (HDSÍ) veitti á dögunum sérstakar viðurkenningar þeim leikmönnum í Olís deildum karla og kvenna sem hafa þótt skara fram úr fyrir háttvísi, heiðarleika og góða framkomu á keppnistímabilinu.

Viðurkenningarnar voru afhentar á uppskeruhátíð Olís- og Grill66 deilda HSÍ sem fram fór á miðvikudaginn, þar sem verðlaun og viðurkenningar tímabilsins voru veitt.

Í Olís-deild karla hlaut Dagur Arnarsson hjá ÍBV heiðurinn, en í kvennaflokki var það Ásdís Guðmundsdóttir úr Fram sem tók við viðurkenningunni frá HDSÍ.

HDSÍ veitir árlega viðurkenninguna til þeirra leikmanna sem dómarar telja hafa sýnt af sér framúrskarandi íþróttamennsku og fyrirmyndarhegðun. Við matið er meðal annars litið til samskipta við dómara, samherja og andstæðinga, auk almennrar framkomu innan vallar sem utan.

ARNÓR SNÆR OG LOVÍSA BEST Í OLÍS-DEILDUNUM

ÍDA MARGRÉT OG ÍSAK ÓLI BEST Í GRILL66-DEILDUNUM

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top