Örn Þrastarson hefur tekið við karlaliði Selfoss af Spánverjanum, Carlos Martin Santos sem hætti með liðið óvænt eftir síðustu leiktíð. ,,Örn er Selfyssingum að góðu kunnur en hann spilaði með meistaraflokk og síðustu 20 ár hefur hann þjálfað hjá deildinni. Hann hefur þjálfað meistaraflokk kvenna, u-lið karla, 3. flokk karla og kvenna ásamt mörgum yngri flokkum," segir í tilkynningunni frá Selfossi en síðustu ár hefur Örn einnig starfað sem íþróttastjóri deildarinnar. „Ég er mjög spenntur að takast á við þetta spennandi verkefni. Ég tek við góðu búi frá Carlosi en ég hinsvegar þekki þessa stráka vel, veit hvað í þeim býr og er fullviss um að þeir eigi mörg skref inni og það séu bjartir tímar framundan.“ sagði Örn Þrastarson við undirritun samnings. Selfoss endaði í 9.sæti Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð sem nýliðar í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.