Mirko Alilović heldur áfram hjá ORLEN Wisla Plock eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við pólska félagið. Hinn fertugi króatíski markvörður verður því áfram í leikmannahópnum á næsta tímabili en hann verður 41 árs í september á þessu ári. Hann hefur varið mark félagsins síðan 2023 en hann gekk í raðir félagsins frá Pick Szeged. Í tilkynningu félagsins er lögð áhersla á að reynsla, yfirvegun og geta Alilović til að skila árangri undir miklu álagi hafi vegið þungt í ákvörðuninni um að framlengja samninginn. Framlengingin kemur í kjölfar tímabils sem fór ekki eins og Wisla Plock hafði vonast til. Félagið stefnir nú að því að endurheimta pólska meistaratitilinn á næsta keppnistímabili eftir að hafa tapað í úrslitaeinvíginu gegn Kielce á dögunum. ,,Ég er ánægður og stoltur af því að verða hluti af þessu verkefni á næsta ári. Fyrst og fremst vegna þess að ég mun enn, 41 árs gamall, spila á hæsta stigi en einnig vegna þess að ég mun með ánægju hjálpa liðinu á allan mögulegan hátt við að ná markmiðum okkar. Við höfum upplifað margar hæðir og lægðir og falleg augnablik en þetta tímabil fór ekki eins og við bjuggumst við, þannig að á næsta ári komum við sterkari til baka. Ég vil þakka öllum innan og í kringum félagið, stuðningsmönnunum og öllum sem styðja Wisla fyrir traustið og trúna á mig," sagði Mirko Alilović.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.