Einn erfiðasti leikur tímabilsins þrátt fyrir stöðuna í töflunni
RONNY HARTMANN / AFP

SC Magdeburg lauk keppni í þýsku úrvalsdeildinni með naumum eins marka sigri 31-30 á útivelli gegn Rúnari Sigtryggssyni og lærisveinum hans í HSG Wetzlar um helgina en Bennet Wiegert, þjálfari liðsins segir leikinn hafa reynst mun erfiðari en taflan gaf til kynna.

HSG Wetzlar var í mikilli fallbaráttu fyrir umferðina og varð að treysta á að Minden myndi ekki ná í fleiri stig en liðið sjálft í lokaumferðinni. Það fór svo að Minden tapaði gegn botnliði Leipzig í lokaumferðinni.

Að sögn Wiegert sást það bæði á leikmönnum og stuðningsmönnum heimaliðsins að leikurinn var þýðingarmikill fyrir Wetzlar.

,,Þetta var erfiður leikur. Maður gat séð að þetta snerist um allt fyrir Wetzlar. Það var mögnuð stemning hér í höllinni. Þótt taflan gæti ef til vill látið líta út fyrir annað var þetta einn af okkar erfiðustu leikjum á tímabilinu,“ sagði Wiegert í samtali við heimasíðu félagsins.

Framundan er úrslitahelgin í Meistaradeildinni þar sem Magdeburg mætir Füchse Berlin í undanúrslitunum í Lanxess Arena í Köln á laugardaginn.

„Við erum mjög ánægðir með að hafa haldið okkur við áætlunina og getum nú undirbúið okkur fyrir Final4 með góðri tilfinningu,“ sagði Wiegert. Magdeburg eru ríkjandi meistarar í Meistaradeild Evrópu eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleiknum í fyrra.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top