Þýski þjálfarinn Jaron Siewert sem gerði Füchse Berlin að Þýskalandsmeisturum í fyrsta skipti í sögu félagsins á síðustu leiktíð snýr aftur til þjálfunar eftir erfiðan tíma og hefur verið ráðinn næsti þjálfari þýska stórliðsins MT Melsungen. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu og staðfestir þar með þann orðróm að Siewert taki við liðinu af Roberto Garcia Parrondo sem lætur af störfum hjá félaginu þegar samningur hans rennur út eftir næsta tímabil. MT Melsungen greindi frá því að Siewert taki við aðalþjálfarastöðunni sumarið 2027. Samningur hans gildir til ársins 2030. Ráðningin kemur nokkrum mánuðum eftir að Parrondo tilkynnti félaginu að hann hygðist leita nýrra áskorana þegar núverandi samningur hans rennur út. Siewert var leystur frá störfum hjá Füchse Berlin í upphafi síðasta tímabils og skömmu síðar kom í ljós að hann hafði fengið heilablóðfall. Það var í annað sinn á ævinni sem hann varð fyrir slíku áfalli, en hann fékk einnig heilablóðfall árið 2022. Nú segist þjálfarinn tilbúinn að hefja nýjan kafla á ferlinum. „Mér líður vel og ég get varla beðið eftir að hefjast handa við vinnuna á ný,“ sagði Jaron Siewert í samtali við heimasíðu félagsins. Þrátt fyrir að hann taki ekki við aðalþjálfarastöðunni fyrr en árið 2027 verður hann hluti af MT Melsungen strax frá byrjun næsta tímabils. Meðal verkefna hans verða leikmannaleit, skipulagning leikmannahópsins, þróun ungra leikmanna og samstarfsverkefni félagsins. Jafnframt fær hann það hlutverk að halda áfram þeirri uppbyggingu sem Roberto Garcia Parrondo hefur stýrt undanfarin ár. Undir stjórn Spánverjans vann MT Melsungen fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins á nýliðnu tímabili þegar liðið fagnaði sigri í Evrópudeildinni á dögunum eftir sigur á THW Kiel í úrslitaleik keppninnar. Reynir Þór Stefánsson verður leikmaður MT Melsungen á næstu leiktíð en Arnar Freyr Arnarsson yfirgefur félagið og gengur í raðir Flensburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.