Samkvæmt upplýsingum Handballtransfer er danska úrvalsdeildarfélagið TTH Holstebro í viðræðum við leikstjórnandann Benedikt Gunnar Óskarsson leikmann Kolstad í Noregi. Samningur Benedikts við norsku meistarana rennur út í sumar og er ljóst að hann yfirgefur norska félagið. ,,Hinn 23 ára gamli Íslendingur vakti athygli í úrslitakeppninni með 40 mörkum, með 74,1% skotnýtingu og lagði þar að auki upp 15 mörk. Í Meistaradeildinni skoraði hann 23 mörk fyrir Kolstad á þessu tímabili. Tölur sem bera vitni um leikstjórnanda með bæði skotógn og góða yfirsýn," segir í umfjöllun Handballtransfer um málið. Þar er fullyrt að viðræður milli TTH Holstebro og Benedikts Gunnars séu í gangi. Þjálfari TTH Holstebro er Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands og fyrir í liðinu er, Jóhannes Berg Andrason en Benedikt Gunnar og Jóhannes Berg voru liðsfélagar í yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. Vitað er af áhuga Íslandsmeistara Vals að fá Benedikt Gunnar aftur heim á Hlíðarenda en Valur tekur þátt í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.