SC Magdeburg lauk nýverið tímabilinu í Þýskalandi sem Þýskalandsmeistari en liðið tryggði sér þýska meistaratitilinn eftir afar sannfærandi frammistöðu í Bundesligunni. Meistararnir unnu 31 af 34 deildarleikjum sínum, gerðu tvö jafntefli og töpuðu aðeins einum leik á leið sinni að titlinum. Liðið endaði með 64 stig á toppi deildarinnar en Füchse Berlin enduðu með 55 stig í 2.sæti deildarinnar. Þrátt fyrir glæsilegt tímabil vantaði þó örlítið upp á að liðið skrifaði nýjan kafla í sögu félagsins. Eftir síðasta leik tímabilsins stóð markatala Magdeburgar í plús 181 mörkum en það er nákvæmlega tveimur mörkum minna en félagsmetið frá meistaratímabilinu 2021/22. Það met stendur enn í plús 183 mörkum. Það sem vekur athygli er að Füchse Berlin sem enduðu í 2.sæti í ár eru með betri markatölu en Magdeburg með plús 191 mörk en í fyrra var Füchse Berlin með plús 213 mörk í markatölu þrátt fyrir að hafa aðeins unnið deildina með einu stigi. Um næstu helgi fer fram úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln þar sem Magdeburg mætir Füchse Berlin í undanúrslitum. Sömu lið mættust í úrslitum keppninnar á síðustu leiktíð þar sem Magdeburg hafði betur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.