Þrátt fyrir að fjögur af sterkustu handknattleiksliðum Evrópu séu eftir í baráttunni Meistaradeild Evrópu karla telur gervigreindarlíkanið ChatGPT að þýska stórliðið SC Magdeburg sé líklegast til að standa uppi sem Evrópumeistari þegar úrslitahelgin í Meistaradeildinni, FINAL4 fer fram í Lanxess Arena í Köln um helgina. Samkvæmt líkindamati ChatGPT eru 32% líkur á því að Magdeburg verji titil sinn. Næst líklegast er spænska stórveldið Barcelona með 29% sigurlíkur, þýska liðið Füchse Berlin fær 25% og danska liðið Álaborg 14%. Þetta þýðir að afar mjótt er á munum á milli þriggja efstu liðanna fyrir úrslitahelgina. Dregið var í undanúrslit í maí og þar kom í ljós að ríkjandi Evrópumeistarar Magdeburg mæta þýsku meisturunum Füchse Berlin. Liðin mættust einnig í úrslitaleik keppninnar á síðustu leiktíð þar sem Magdeburg hafði betur og tryggði sér Evróputitilinn. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Álaborg og Barcelona. Það einvígi vekur einnig mikla athygli enda mættust félögin í úrslitaleiknum árið 2024 þegar Barcelona fagnaði Evrópumeistaratitlinum eftir dramatískan sigur. Úrslitahelgin fer fram í Lanxess Arena í Köln í Þýskalandi, sem hefur verið heimili Final4-keppninnar í rúman áratug. Dagskráin er eftirfarandi: Laugardagur 13. júní Sunnudagur 14. júní Magdeburg kemur til Kölnar sem ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleiknum í fyrra. Félagið hefur unnið tvívegis á síðustu þremur tímabilum og getur nú tryggt sér þriðja titilinn á aðeins fjórum árum. Barcelona er sigursælasta félag í sögu keppninnar með ellefu Evrópumeistaratitla og gæti nú sótt sinn tólfta. Füchse Berlin og Álaborg hafa hins vegar aldrei unnið Meistaradeild Evrópu og gætu bæði skrifað nýjan kafla í sögu félaganna með sigri í Köln. Barcelona unnu Meistaradeildinat tímabilið 2020/2021, 2021/2022 og 2023/2024 og eru Barcelona og Magdeburg því búnir að vinna keppnina síðustu fimm tímabil.Þýskur stórslagur í undanúrslitum
Dagskrá FINAL4
Magdeburg sækir þriðja titilinn á fjórum árum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.